fimmtudagur, október 06, 2005

Efahyggjuþáttur

Ef draumur margra Vantrúarseggja verður að veruleika þá legg ég til að þetta verði þemalagið. Hver man ekki eftir þessum þáttum?
Að sofna vakandi

Þökk sé Árna vini mínum er ég orðinn áhugamaður um skýrdreymi (enska: lucid dreaming). Flestir kannast ef til vill við það að uppgötva að maður sé staddur í draumi. Nýjasta áhugamálið mitt er sem sagt að reyna að þjálfa mig upp í að vera meðvitaður í draumunum.

Ein aðferðin er sú að reyna að vera meðvitaður um að maður sé að sofna og sofna "meðvitaður". Ég reyndi eina aðferð af þessari gerð í gær og það tókst ágætlega. Ég fann einhvers konar titring fara um allan líkamann og það er víst merki um að maður sé að fara að sofna. Það sem kom mér meir á óvart var að ég varð ekki hræddur því ég hef tvisvar upplifað svefnlömun, með ofskynjunum og öllu.

Nú ætla ég að fara að reyna aftur að sofna almennilega.

sunnudagur, október 02, 2005

Mikið á sig lagt

Ég er kominn með mörg verkefni í sambandi við öfgatrúleysisfélagið mitt. Meðal verkefna er að skrifa greinar, þýða grein, þýða af skepdic, pikka inn á tölvu eina ritgerð og fjórar greinar, skrifa niður enskann texta af hluta af frábærri trúleysisárðóðursmynd. Síðast en ekki síst er ég að lesa mikið af greinum og predikunum eftir kirkjuna og finna "góðar" tilvitnanir; ótrúlegt en satt, það er líklega skemmtilegasta verkefnið:
Oft hlýtur presturinn að spyrja sig: "Til hvers? Hér er ég að semja prédikun, velja sálma, standa í ströngu að koma á messu, og svo mæta aðeins nokkrar manneskjur. Til hvers er ég að leggja þetta á mig? - Karl Sigurbjörnsson

sunnudagur, september 25, 2005

Endurkoman mikla
Ég var að reyna að skrifa Vantrúargrein og fann allt í einu til mikillar ritgleði. Það er í sjálfu sér glæpur að ég skuli ekki leyfa heiminum að njóta spekinnar sem flæðir úr mér. Bíðið spennt!

miðvikudagur, apríl 20, 2005

Lag á heilanum

Ég er með lag á heilanum. Ég hef verið með mörg lög á heilanum, til dæmis raulaði ég "Nothinng compares to you" í heilt sumar. En allt er betra en: Framsóknarsamba. Ég er að brjálast!

mánudagur, mars 07, 2005

Hið sanna eðli biskufsins

Biskup Íslands, Kalli er með stórgóða prédikun á vefi kirkjunnar. Nafn prédikunarinnar er spurning: "Hvernig manneskja viltu vera?"

Hingað til hefur opinber stefna Þjóðkirkjunnar verið sú að skólinn ætti ekki að vera trúboðsstofnun, biskupinn virðist vera ósammála kirkjunni. Hann líkir trúnni við móðurmálið og segir að engu foreldri dettur í hug að "innræta því ekki móðurmálið". Enda ætti öllum að vera ljóst að trúin er eina vörnin gegn "sálardeyðandi og mannskemmandi guðleysis og vantrúar."

Þó svo að það sé ekkert nýtt í þessum málflutningi Kalla, þá er athyglisvert ekki einn einasti netnotandi kirkjunnar maður hefur sagt neitt um þetta. Eru þeir kannski með þessu að gera okkur ósammála biskupnum? Því eins og biskupinn segir: "Það að þegja um trú er innræting gegn trú."
Nýtt útlit

Í tilefni af því að ég ætla að fara að stunda áköf áróðursskrif þá hef ég breytt um útlit á síðunni. Ástæðan fyrir breytingunni er sú að það er þægilegra að lesa texta sem eru með þessa línulengd. Einnig virðast pistlanir mínir vera lengri svona.
Haloscan commenting and trackback have been added to this blog.

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Gleði og hamingja

Endalaus gleði og hamingja! Stefán Einar nemandi við Prestaskóla Íslands og íhaldsmaður með meiru er aftur byrjaður að blogga. Ég tók fyrst eftir þessum stórskemmtilega penna þegar hann átti í athyglisverðri ritdeilu við Sigurð Hólm.

Ég læt fylgja með uppáhalds færsluna mína:

Vantrú.net
Ég átta mig ekki alltaf á því hvert þeir menn eru að fara sem rita pistla á vantru.net. Þeir reyna með öllum tiltækum ráðum, jafnvel með óhreinum meðulum að sverta kristna trú og kirkju. Með ruddalegum fullyrðingum sem oftast eiga ekki við nein rök að styðjast reyna þeir að koma fólki í skilning um að trúa ekki.

Ég virði vel skoðanir þessara manna að trúa ekki, það er þeirra val og ég dæmi þá ekki af þeirri afstöðu. Það er þó ómögulegt að sitja hljóður þegar þeir halda því fram að þjóðin eigi að skammast sín fyrir Passíusálmana vegna þess að þar sé að finna gyðingahatur. Þetta er þvæla sem á ekki við nein rök að styðjast og er leitt að menn skuli leyfa sér að tala á þennan hátt um þá menningararfleið þjóðarinnar sem hvað hæst rís.

Raunar hef ég hingað til tekið þá ákvörðun að svara þessum mönnum ekki, þeir eru raunar ekki svara verðir en manni sárnar svona tal, sérlega þegar rangt er farið með.


Leiðinlegt að hann vilji ekki taka þátt í umræðunni. Hann verður líklega fyrirmyndar Þjóðkirkjuprestur, hefur ekki áhuga á eða kann ekki að taka þátt í umræðum um trú og verður sármóðgaður þegar eitthvað er sagt um kirkjuna eða trúnna.

En það sem ég skil ekki er það að ef að við á vantrú erum bara að bulla hvers vegna leiðréttir hann þá þetta ekki?

fimmtudagur, janúar 20, 2005

Cur Deus fluctum venire sivit? Gens eum non credabant?

Þannig hef ég þýtt spurningu dóttur Ella djákna yfir á mjög lélega latínu. En eins og má sjá hérna hljómaði spurningin svona: "Af hverju lét Guð flóðið koma, trúði fólkið ekki á hann?"

Fyrir utan það að svo virðist sem kristinfræðin hafi talið henni trú um að guð vilji endilega drepa heiðingja þá er það athyglisverðasta við þessa færslu að Halldór vorðist hafa svar við þessari spurningu en hann getur ekki miðlað henni vegna þess hve miklu "þroskaðri guðsmynd" hann hefur.

Raunin virðist vera sú að hann hefur ekki nein svör við þessari spurningu. Sú trú hans að til sé al-guð (alvitur, almátttugur og algóður guð) er þegar altt kemur til alls í mótsögn við staðreyndir sem að ættu að vera öllum mönnum augljósar. Ég tel það siðferðislega rangt að trúa einhverju þegar að allar staðreyndir málsins benda í aðra átt. Það er rangt að telja eitthvað rétt án fullnægjandi raka því að röng þekking leiðir af sér viltausa siðferðisdóma.

En Carlos virðast vera á öndverðu meiði. Samkvæmt honum er mælikvarðinn á sanna og ósanna trú þetta: "Satt er það sem virkar, satt er það sem gerir fólk heilbrigt, hamingjusamt og virkt í umhverfi sínu?"

Flest fólk væri ósammála þessu við allar aðrar aðstæður:

Raggi er rasisti. Hann veit að allar tilraunir hafa sýnt það að það er enginn mælanlegur munur á greind manna af mismunandi kynþáttum. Þrátt fyrir þetta trúir hann því að hans kynþáttur sé miklu gáfaðri en aðrir. Þessi trú fær hann til þess að líða vel.

Hvernig geta trúmenn gagnrýnt Ragga þegar eðli trúarsannfæringar þeirra er nákvæmlega eins? En til þess að verja notkun trúarinnar vilja trúmenn gjarnarn benda á hversu afskaplega takmarkað svið skynseminnar sé, án þó þess að útskýra nákvæmlega hvernig, síra Skúli er einn af þessu trúmönnum. En samkvæmt honum er trúin "handan skynseminnar" (skrauthvörf orðsins óskynsamleg) og því er samkvæmt honum sannleiksgildi trúar einnig "handan skynseminnar", en ef svo er þá eru engar trúarskoðanir sannar og engar ósannar. Frekar ruglingslegt, má ég þá bara trúa hverju sem er? En ekki nóg með það heldur segir hann annars staðar að sá maður sem notar aðeins skynsemina missi ekki einungis af þeirri "dýpt sem fylgir trúarlífi mannsins" heldur að hann fari "...líka á mis við ástina, vináttuna og listina. Ekkert af þessu á rætur sínar í skynseminni."

Reynum að yfirfæra þetta viðhorf á rasismann hjá honum Ragga. Raggi heldur því fram að þó að yfirburðir hans kynstofns séu að vísu ekki mælanlegir þá komi það ekki á óvart því að þeir yfirburðir eru "handan skynseminnar" og stafa kannski af yfirnáttúrulegum orsökum.

Hvernig getur Skúli gagnrýnt þetta viðhorf? Að mínu mati getur hann það ekki.

En svo að ég snúi mér aftur að Halldóri þá held ég að hann ætti annað hvort að losa sig við þessa guðshugdettu eð þá að sætta sig við máttlausa guð froðusnakkarans Sigurðar eða þá afskiptalausa guð rökfræðikóngsins Arnar Bárðar.